miðvikudagur, desember 27, 2006

mánudagur, desember 18, 2006

Glöggur

Undirbúningur fyrir glöggina er kominn á fullt skrið.
Nú þarf einungis að ákveða allt.
Nefndin er víst alveg á fullu og eru allir að leggja sitt að mörkum.

Hér sést Helgi Hrafn á fundi með sölustjóra Vífilfells.
Umræðuefnið ku hafa verið um magnafslátt fyrir glöggina góðu.
Takið nú hrafninn til fyrirmyndar og látið hendur standa fram úr ermum (ath. ermarnar hans Helga).

fimmtudagur, desember 14, 2006

Jólaglögg Þynnkuboltans

Það hefur verið ákveðið samkvæmt meirihlutaatkvæði að jólaglöggið 2006 verði haldið heima hjá Steinari Erni Jónssyni að Eggertsgötu þann 26. desember næstkomandi.

Einsog áður hefur verið rætt hér á þessum síðum verður ýmisleg dagskrá á skemmtuninni. Því eru félagsmenn vinsamlegast hvattir til þess að skrifa ræður, undirbúa sögur eða brandara, tónlistaratriði eða hvaðeina sem lífgað getur upp á rauðþrútin brennivínsnefin í svartasta skammdeginu. Ég vil fá innsendar tillögur um atriði hér í kommentakerfið.

Undirritaður mun svo hafa aðalumsjón með innkaupum. En fyrst þarf að skipuleggja innkaupalistann. Rætt er um að kaupa áfengi í sameiningu, leigja karaoketæki, ekki mat en eitthvað þarf þó að maula. En til þess að koma þessu í skipulagt horf vil ég biðja ykkur um að tjá ykkar skoðanir hvað þessi mál varðar í kommentakerfinu. Einnig þurfum við að ákveða hvort við viljum leggja í púkk - kannski 1000 kall á mann.

Sem formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans vil ég árétta það og undirstrika að það er geysilegur vilji hjá undirbúningsnefndinni að þetta verði ein skemmtilegasta og fyndnasta samkoma seinni ára. Við ætlum að sleppa af okkur beislinu - enda er ærin ástæða til: Farfuglarnir í hópnum ætla að fljúga frá Skotlandi, Danmörku og fleiri stöðum til þess að heiðra okkur með nærveru sinni og hreiðra um sig í þessu gargandi galvaníseraða gaukshreiðri sem þessi vinahópur er. Auk þess hyggja aðrir félagsmenn á að gerast farfuglar strax á nýju ári.

En þegar ástæðan er ærin er starfinn einnig ærinn. Því árétti ég enn og aftur við ykkur og sendi ykkur hugvekju, ágætu þynnkbyltingar: Við verðum að leggja okkur alla fram. Rætt hefur verið að syngja hástöfum, klæðast múnderingum þeim sem við felum innst í skápnum og dreymum um að fá að máta. Það mun standa að allt sé leyfilegt ef menn geta lexískt stunið því uppúr sér að það sé FJÖR.
Og með þessum orðum ríf ég dyr umræðunnar af hjörunum og opna hana uppá gátt. Ég vil líflegar umræður hér í kommentakerfi. Leggjumst á eitt og sköpum farveg fyrir skemmtilegasta kvöld ársins.

Koma svo! Galvansseiðandi gaukarnir mínir! Beislum galvanskraftinn! Við skulum ekki vera galúneraðir gikkir! Við erum komfórusspirítískir kommandörar!

þriðjudagur, desember 05, 2006

sunnudagur, nóvember 26, 2006

Mér er svo illt

Ég meiddi mig.
Rosa

Mun einhver skora svona bjútí í Réttó á eftir? Grulli? Steinar? Hreinn?

föstudagur, nóvember 24, 2006

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Er ist eine Skala der Proportionen, die das Schlechte schwierig und das Gute leicht macht


Það hefur borið á því að barið sé hátt og snjallt á dyr einar í Réttarholtsskóla þegar leikar standa hæst. Hafa dynkir þessir skelft galvanmenn og látið hárin rísa.

En eru þetta ekki bara yngri leikmenn sem eru farnir að banka á dyrnar?

HAHHAHAHAHA?

laugardagur, nóvember 18, 2006

Fréttir


Þynnkoboltastund!

Friðrik Steinn er Martin Palermo Þynnkuboltans.
Eftir að hafa rekið hnéið rösklega í glerborð í gærkvöldi er óvíst um þátttöku Friðriks Steins í leiknum á morgun. Þynnkubolti.blogspot.com mun fylgjast náið með framvindu mála.

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Doddi, hættu að drekka

þú ert að breytast í Asíumann

Reimt í þynnkuboltanum?

Gríðarleg barátta og hugrekki einkenndu boltann síðasta sunnudag. Mættust þar 12 galvanhúðaðir drengir og börðust eins og grenjandi ljón.

Lið voru skipuð þannig:

Lið réttlætisins:
Grettir góði
Axel afi
Bassi bomba
Doddi dansari
Steini stóri
Hreinn hrossatemjari

Lið réttlætisins 2:
Frikki friðarsinni
Helgi hafrannsóknarmaður
Tóri typpi
Pitti postuli
Bragi brúni
Freysi frægi

Attendance: 1.000.000 x 10^-6

Leikurinn endaði í 5-5 jafntefli, þrátt fyrir ógnarsókn liðs réttlætisins undir lokin. Það gerðist einnig undir lokin að ærsladraugar (poltergeist) lömdu á glugga og hurðir og gerðu gulldrengina, frægu og góðu gulldrengina, mjög skelkaða.

föstudagur, nóvember 10, 2006

Fleginn Hrafn og Búbbi litli



Helgi Hrafn sést hér með nýjasta meðlimi Þynnkuboltans, honum Búbba.
Búbbi þykir mikilll svelgur og hefur nú þegar verið á spenanum í fimm mánuði.
Búbba og Svelga varð strax vel til vina og nú þegar hefur Búbbi fegnið að gista nokkrum sinnum með Helga.
Myndin var tekin á síðasta fundi Þynnkuboltans. Á henni sést Helgi Hrafn hjúkra hinum rauða- og drykkjuþrútna Búbba vegna annarlegs ástand hans.
Við hér á þynnkubolti.blogspot.com bjóðum Búbba velkominn í hópinn.
Húrrah. Húrrah. Húúúúúraaaaah.

Myndin er ekki sviðsett.


fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Grillað á garðinum pt. 2



Farðu að grenja

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

HAHAHAHAHAHA



Axel feiti á brettinu!

mánudagur, nóvember 06, 2006

Ræði ég ekki hvort ég borga í lífeyrissjóð? VILJIÐI ÞAGGA NIÐUR Í ÞESSARI KONU!

Leikar æstust mjög mikið á þessum fallega laugardagsmorgni í Hvassaleitisskólanum. Guðmundur Björnsson mætti fyrstur og beið eftir okkur hinum krökkunum. Loksins hófst leikurinn. Þessi æðislegi fótboltaleikurinn.

Lið A var skipað:
Gretti Ósk Heimisdóttur
Friðriki froski :)
Atla Frey

Á móti liði B sem var skipað eftirtöldum fótboltakörlum:
Helga Hrafni
Akseli

Þá fer að styttast í næsta leik sem verður að sjálfsögðu um næstu helgi.

sunnudagur, október 29, 2006

Nei takk, við kaupum ekki Alþýðublaðið

Það var kátt í höllinni í Réttarholtsskóla í dag. Fagrir leggir léku með knetti og skutu þeim fram og aftur í salnum sem tundurskeyti væru. Stelpan sem gætir salarins stóðst ekki freistinguna og njósnaði um ljósvíkingana.

Liðin skipuðu:

A.
Grettir gulldrengur
Friðrik gulldrengur
Ásgeir gulldrengur
Gvendur gulldrengur

B.
Helgi gulldrengur
Steini gulldrengur
Axel gulldrengur
Freyr gulldrengur
Hreinn gulldrengur

Doddi glópagulldrengur skrópaði hinsvegar og verður honum refsað. Meðfylgjandi er mynd af einum gulldrengnum, sýnishorn töfra og krafts sem í hópnum býr.

miðvikudagur, október 11, 2006

Jólaglögg Þynnkuboltans IV


Auglýst er eftir skemmtiatriðum á Jólaglöggi Þynnkuboltans 2006. Allir félagsmenn eru hvattir til þess að láta til sín taka á þessu mikilvæga sviði hópeflis í þágu liðsins. Sebastian Ryborg Storgaard hefur þegar samþykkt að syngja lögin hans Bubba Morthens auk þess sem Axel Kaaber mun stjórna hópsöngi hins sívinsæla spænska jólalags, "Gleðileg jól".

Kveðja,
Helgi Hrafn Guðmundsson, formaður undibúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans.

miðvikudagur, október 04, 2006

Frjáls framlög

Til að styrkja Þynnkuboltann er hægt að senda pening á þennan reikning 0137-26-055285
kt: 0211842849
Þynnkuboltinn þakkar fyrir öll framlög.

þriðjudagur, september 26, 2006

Hagsmunasamtök

Ég fékk þetta e-mail eins og svo margir í HÍ


Til forsvarsmanna nemendafélaga,

Ég er að taka saman upplýsingar um nemendafélög/hagsmunafélög í Háskólanum. Það væri því gott ef þið gætuð sent mér nöfn, símanúmer og email allra í stjórn nemendafélags ykkar.

Ég hvet líka alla þá sem hafa áhuga á því að stofna nemendafélag við skólann að hafa samband.

Bestu kveðjur,

Sigurður Örn Hilmarsson

formaður Stúdentaráðs HÍ

shi@hi.is

siguhil@hi.is

GSM: 896-9444

og auðvitað sendi ég inn umsókn sem hagsmunafélag.

Þynnkuboltinn, hagsmunasamtök stúdenta sem vilja spila fótbolta þunnir!

mánudagur, september 25, 2006

Jólaglögg Þynnkuboltans III



Hreinn Bernharðsson hefur verið ráðinn skreytingastjóri undirbúningsnefndar varðandi Jólaglögg Þynnkuboltans.

Kveðja,
Helgi Hrafn Guðmundsson, formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans.

Jólaglögg Þynnkuboltans II



Axel Kaaber hefur verið ráðinn varaformaður undirbúningsnefndar varðandi Jólaglögg Þynnkuboltans.

Kveðja,
Helgi Hrafn Guðmundsson, formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans.

Jólaglögg Þynnkuboltans



Auglýst er eftir fólki í undirbúningsnefnd Jólaglöggs 2006. Áhugasamir hafi samband.

Kveðja,
Helgi Hrafn Guðmundsson, formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans.

sunnudagur, september 24, 2006

Nýtt tímabil hafið


Nýtt tímabil er hafið og aldrei í sögu Þynnkuboltans hefur hann verið jafnglæsilegur.
Við höfum skipt um heimavöll og erum komnir á nýjan 60 þúsund manna völl.
Nokkrar mannbreytingar hafa orðið en má þar helst nefna brottvíkingu Árna Ólafssonar sem hefur verið rekinn frá félaginu með mikilli skömm.

Lið voru svo skipuð

Svifryk Friðrik flaut um salinn og negldi þrennuna
Forlanwannabíið-Helgi helgaði sig markinu og setti einnig þrennu
Steini sleggja stóð vörðinn í vinstri bak
Túndru-Dúndru-Doddi negli nokkra nagla úr veggnum
Gvendur-Öruggar Hendur setti eitt eftir glæsilegt sólóprógramm. Hann mun gefa út disk á næstunni.
Frilli-Freyr barðist sem fress á adrenalíni og náði að hrista upp í sókn andstæðinga sinna.

spiluðu gegn

Synda-Sela sem mætti hress með sundhettuna en náði ekki að nota hana sem skyldi.
Sæ(kó)-Bassi náði ekki að troða honum inn eftir mikið klapp á boltanum.
Bragi Páll var sem áll á vellinum og smeygði sér fram hjá nokkrum varnarmönnum jafnvel eftir afhausun hans.
Læðu-Steimdór klór-aði sig inn í boltann og skoraði opunarmark Þynnkuboltans.
Hreinsi beibí slammaði einum inn í markið við mikinn fögnuð. Svo náði hann þeim áfanga að vera minnsti maðurinn í sögu Þynnkuboltans sem skallar boltann.
Krissi Spæs náði að krydda aðeins upp á leikinn og náði einu sinni að spæla andstæðinga sína.

Opnunarleikurinn fór rosalega vel fram. Mikil átök voru fyrstu mínúturnar en ekkert mark skorað en svo fór allt í gang.

Leikar fóru 7-2 fyrir fyrra liðinu. Samt segir markatalan ekki allt því leikurinn var mjög jafn. Svo væri gaman að fjalla aðeins um aðdraganda

föstudagur, apríl 07, 2006

Við tókum síðasta tíma á kredit. Svo við skuldum 1000 og ef við ætlum að halda áfram þá er það 2000 fyrir morgundaginn. Ég nenni þessu ekki lengur ef menn mæta ekki eða láta ekki vita af sér. Sjálfur mun ég líklegast ekki mæta á morgun vegna veikinda. Svo þið þurfið að mæta með 2000 krónur.

sunnudagur, mars 19, 2006

Sælar

Hörkuleikur í boltanum í gær. Sumir mættu seint á meðan aðrir sváfu yfir sig og er það slæmt. Engu að síður náðist hörkustemning og baráttan var í algleymingi. Liðin voru svo:

Black shirts:

steini keeper
doddi sweeper
árni tengill
axel senter

brokeback:

Helgi hrausti
Frikki fríski
Grettir gulldrengur

Leikar fóru 12-12. Mikið um glæsileg mörk og góð tilþrif.

ask? ofmat.

sunnudagur, febrúar 12, 2006

11 febrúar

Í gær var mikið um gróf brot og slagsmál. Þar tókust á:

Veiki Frikki
Stóri Grettir
Sterki doddi og
Maradona Axel

á móti

Framherja Helga
Hraða Steina
Baráttu Árna og
Grófa Gvendi

Staðan var frekar jöfn framan af þangað til tíu mín voru eftir þá gafst síðar nefnda liðið upp og gaf leikinn. Baráttan var þvílík í fyrri hálfleik og í byrjun seinni þangað til að vörnin gaf sig hjá seinna liðinu og lak inn fáránlega mörgum mörkum. En svona er lífið, það lekur eftir ákveðnar margar mín.

En munið árshátíðina á föstudaginn og svo ef einhverjir eiga eftir að borga þá skulu þeir borga sem snöggvast.

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Árshátíð

Árshátíð Þynnkuboltans verður föstudaginn 17 febrúar. Heima hjá Steina stuð. Þar verður mögnuð stemning og svelgquiz haldið auk annara uppátækja svosem kosningu um bestu og efnilegustu leikmenninna. Daginn eftir verður svo ekkert gefið eftir í boltanum og mætum við allir útúrþunnir í fússara. Er annars einhver að fylgjast með bjórskuldunum? Hvernig skal bjórskuldin borguð og hver ætlar sér síðan að drekka þann bjór?

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Tíðin

Já, senn líður að árshátíðinni og við verðum að fara að skipuleggja okkur.

Ég legg til að það verði kosningar í teitinu.

Besti alhliðaleikmaður þ.e. leikmaður ársins.

Besti markvörður
besti varnarmaður
besti tengiliður
besti framherji

besti varamaður
mestu framfarir


lið ársins þ.e. það lið sem væri bara ósanngjarnt að búa til.

Svo þurfið að drullast til að borga það er nú einu sinni fyrsti.
Þeir sem eiga eftir að borga eru:
doddi
helgi
grettir
seli

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Borga

Nú er um að gera og drulla sér í það að borga.

Þeir sem hafa greitt eru:

Ási
Árnsi
Gvendsi
Frikksi
Steinsi

mánudagur, janúar 16, 2006

Es regrosso

Geggjuð hugmynd. Nú getur maður lifað í boltaheimi alla vikuna og notið boltans svo til fulls þegar klukkan slær fimm á laugardegi. Þetta verður vinsælla en mbl!!!

sunnudagur, janúar 15, 2006

Góður bolti í gær. Sumir voru farlama af þynnku en það kom ekki að sök.
Lið skipað
Sela
Stert
Stárna og
Stiðriki
gerði sér lítið fyrir og rótburstaði lið skipað
Kellingar-Gvendi
Vælu-Helga
Steina stirða og
Grenju-Gretti
Lokastaðan var eitthvað um 5-21

Axel var að spila sinn fyrsta leik í marga marga marga mánuði og stóð hann sig með prýði. Enda hefur hann æft stíft í landi Guðs.


Steini staðfesti líka boltateiti 11. feb. svo það er um að gera að taka þann dag frá.

Ég held að allir séu núna komnir með aðgang að síðunni. í það minnsta hef ég sent öllum boð um það.

L8er
General Gattuso

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Sælir

Jæja, þá er komið að skuldadögum. Það þarf að borga kellu 10 þúsund krónur á næsta laugardag. Þar sem við erum 8 þá eykst aðeins álagið. Þetta eru því 1250 krónur sem leggja þarf inn á mig fyrir laugardaginn.

0137-26-005528
kt. 0211842849

Ég hef ætlað að stofna sér reikning fyrir boltan en ekki komist í það vegna svefns. Ég ætla þó núna að halda sérstakt bókhald svo nú kemst enginn upp með það að borga ekki.

Annað mál á dagskrá
Á laugardaginn verður frekar fámennt í boltanum af kjarnanum.
Tott-Doddi, Rassgats-Helgi og Gvendarbrundur verða allir fjarverandi og fá þeir auðvitað bjórsekt vegna þess. Við erum þó ekki að baki dottnir. Mögulegir varamenn myndu vera Axel, Biggi og Svanur. Þið getið líka komið með uppástungu á leikmanni sem er í svipuðum gæðaflokki og við.

Þriðja mál.
Steini, hvernig er það? Erum við að fara hittast hjá þér á laugardaginn? Ég ætla að leggja til að skemmtunin verði einungis opin mönnum á leikskrá svona fyrst um sinn.
Þeir sem eru á leikskrá hjá okkur eru:

Þórður
Sigurður
Steinar Örn
Árni
Guðmundur
Birgir Örn
Friðrik Steinn
Oddur
Sigurður Arent
Helgi Hrafn
Ásgeir Pétur
Axel
Svanur
Grettir
Freyr
Bergur
Gunnar Örn

Er þetta ekki rétt?

Látið heyra í ykkur.
kveðja
Franz B.