
Nýtt tímabil er hafið og aldrei í sögu Þynnkuboltans hefur hann verið jafnglæsilegur.
Við höfum skipt um heimavöll og erum komnir á nýjan 60 þúsund manna völl.
Nokkrar mannbreytingar hafa orðið en má þar helst nefna brottvíkingu Árna Ólafssonar sem hefur verið rekinn frá félaginu með mikilli skömm.
Lið voru svo skipuð
Svifryk Friðrik flaut um salinn og negldi þrennuna
Forlanwannabíið-Helgi helgaði sig markinu og setti einnig þrennu
Steini sleggja stóð vörðinn í vinstri bak
Túndru-Dúndru-Doddi negli nokkra nagla úr veggnum
Gvendur-Öruggar Hendur setti eitt eftir glæsilegt sólóprógramm. Hann mun gefa út disk á næstunni.
Frilli-Freyr barðist sem fress á adrenalíni og náði að hrista upp í sókn andstæðinga sinna.
spiluðu gegn
Synda-Sela sem mætti hress með sundhettuna en náði ekki að nota hana sem skyldi.
Sæ(kó)-Bassi náði ekki að troða honum inn eftir mikið klapp á boltanum.
Bragi Páll var sem áll á vellinum og smeygði sér fram hjá nokkrum varnarmönnum jafnvel eftir afhausun hans.
Læðu-Steimdór klór-aði sig inn í boltann og skoraði opunarmark Þynnkuboltans.
Hreinsi beibí slammaði einum inn í markið við mikinn fögnuð. Svo náði hann þeim áfanga að vera minnsti maðurinn í sögu Þynnkuboltans sem skallar boltann.
Krissi Spæs náði að krydda aðeins upp á leikinn og náði einu sinni að spæla andstæðinga sína.
Opnunarleikurinn fór rosalega vel fram. Mikil átök voru fyrstu mínúturnar en ekkert mark skorað en svo fór allt í gang.
Leikar fóru 7-2 fyrir fyrra liðinu. Samt segir markatalan ekki allt því leikurinn var mjög jafn. Svo væri gaman að fjalla aðeins um aðdraganda
Engin ummæli:
Skrifa ummæli