fimmtudagur, janúar 12, 2006

Sælir

Jæja, þá er komið að skuldadögum. Það þarf að borga kellu 10 þúsund krónur á næsta laugardag. Þar sem við erum 8 þá eykst aðeins álagið. Þetta eru því 1250 krónur sem leggja þarf inn á mig fyrir laugardaginn.

0137-26-005528
kt. 0211842849

Ég hef ætlað að stofna sér reikning fyrir boltan en ekki komist í það vegna svefns. Ég ætla þó núna að halda sérstakt bókhald svo nú kemst enginn upp með það að borga ekki.

Annað mál á dagskrá
Á laugardaginn verður frekar fámennt í boltanum af kjarnanum.
Tott-Doddi, Rassgats-Helgi og Gvendarbrundur verða allir fjarverandi og fá þeir auðvitað bjórsekt vegna þess. Við erum þó ekki að baki dottnir. Mögulegir varamenn myndu vera Axel, Biggi og Svanur. Þið getið líka komið með uppástungu á leikmanni sem er í svipuðum gæðaflokki og við.

Þriðja mál.
Steini, hvernig er það? Erum við að fara hittast hjá þér á laugardaginn? Ég ætla að leggja til að skemmtunin verði einungis opin mönnum á leikskrá svona fyrst um sinn.
Þeir sem eru á leikskrá hjá okkur eru:

Þórður
Sigurður
Steinar Örn
Árni
Guðmundur
Birgir Örn
Friðrik Steinn
Oddur
Sigurður Arent
Helgi Hrafn
Ásgeir Pétur
Axel
Svanur
Grettir
Freyr
Bergur
Gunnar Örn

Er þetta ekki rétt?

Látið heyra í ykkur.
kveðja
Franz B.

Engin ummæli: