Það hefur verið ákveðið samkvæmt meirihlutaatkvæði að jólaglöggið 2006 verði haldið heima hjá Steinari Erni Jónssyni að Eggertsgötu þann 26. desember næstkomandi.Einsog áður hefur verið rætt hér á þessum síðum verður ýmisleg dagskrá á skemmtuninni. Því eru félagsmenn vinsamlegast hvattir til þess að skrifa ræður, undirbúa sögur eða brandara, tónlistaratriði eða hvaðeina sem lífgað getur upp á rauðþrútin brennivínsnefin í svartasta skammdeginu. Ég vil fá innsendar tillögur um atriði hér í kommentakerfið.
Undirritaður mun svo hafa aðalumsjón með innkaupum. En fyrst þarf að skipuleggja innkaupalistann. Rætt er um að kaupa áfengi í sameiningu, leigja karaoketæki, ekki mat en eitthvað þarf þó að maula. En til þess að koma þessu í skipulagt horf vil ég biðja ykkur um að tjá ykkar skoðanir hvað þessi mál varðar í kommentakerfinu. Einnig þurfum við að ákveða hvort við viljum leggja í púkk - kannski 1000 kall á mann.
Sem formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans vil ég árétta það og undirstrika að það er geysilegur vilji hjá undirbúningsnefndinni að þetta verði ein skemmtilegasta og fyndnasta samkoma seinni ára. Við ætlum að sleppa af okkur beislinu - enda er ærin ástæða til: Farfuglarnir í hópnum ætla að fljúga frá Skotlandi, Danmörku og fleiri stöðum til þess að heiðra okkur með nærveru sinni og hreiðra um sig í þessu gargandi galvaníseraða gaukshreiðri sem þessi vinahópur er. Auk þess hyggja aðrir félagsmenn á að gerast farfuglar strax á nýju ári.En þegar ástæðan er ærin er starfinn einnig ærinn. Því árétti ég enn og aftur við ykkur og sendi ykkur hugvekju, ágætu þynnkbyltingar: Við verðum að leggja okkur alla fram. Rætt hefur verið að syngja hástöfum, klæðast múnderingum þeim sem við felum innst í skápnum og dreymum um að fá að máta. Það mun standa að allt sé leyfilegt ef menn geta lexískt stunið því uppúr sér að það sé FJÖR.
Og með þessum orðum ríf ég dyr umræðunnar af hjörunum og opna hana uppá gátt. Ég vil líflegar umræður hér í kommentakerfi. Leggjumst á eitt og sköpum farveg fyrir skemmtilegasta kvöld ársins.Koma svo! Galvansseiðandi gaukarnir mínir! Beislum galvanskraftinn! Við skulum ekki vera galúneraðir gikkir! Við erum komfórusspirítískir kommandörar!
6 ummæli:
Ég vil að boðsmiðar verði sendir út á varamenn hópsins. Rafrænt eða munnlega, skiptir ekki máli. Við virðumst vera sammála um að það er þarft að rukka inn enda erum við ekkert að fara greiða niður gjald þeirra sem mæta. Eitthvað var rætt um 1000 karl eða 500. Sjálfur finnst mér 1000 karl alveg viðunandi og sanngjarnt. Nefndin þarf að hittast og ræða um þá sem eru alveg pottþétt boðnir svo sem menn sem hafa mætt í boltann og svo er þessi spurning um vandamenn. Hvert er hámarkið á þeim?
Ég styð 1000 kallinn. Mér finnst það frekar sanngjarnt því ekki þurftu allir að borga félagsgjaldið sem munu mæta - en afgangur þess fer að sjálfsögðu í veisluna samt sem áður.
En hvað varðar vandamenn finnst mér að þeir geti ómögulega verið margir þar sem þröngt er á þingi á Eggertsgötunni með okkur.
Jafnvel miða það út við þá sem mættu á árshátíðina.
Sammála er ég um 1000 krónu gjald. Það þyrfti að gera lista yfir vandamenn og velunnara sem að allir gútera og eru dúss með. Svo væri svolítið veglegt ef allir fengju boðskort. Gott væri ef Steini gæfi fjöldatakmark svo hægt væri að gera endanlegan lista manna. Ef allir borga þúsara gæti nefndin unnið úr einhverjum hellingspening og hófið haft veglegar veigar og verið óhreinkað að hætti formanns skreytinganefndar. Nú verða menn að fara að láta skoðanir sýnar í ljós! Gerum lista yfir skemmtiatriði. Menn verða að pitcha hugmyndum sínum til nefndarmanna!
Strákar, sleppið typpunum og byrjið að skrifa eitthvað.
Þetta verður klárlega makalaust teiti.
Skrifa ummæli