þriðjudagur, september 26, 2006

Hagsmunasamtök

Ég fékk þetta e-mail eins og svo margir í HÍ


Til forsvarsmanna nemendafélaga,

Ég er að taka saman upplýsingar um nemendafélög/hagsmunafélög í Háskólanum. Það væri því gott ef þið gætuð sent mér nöfn, símanúmer og email allra í stjórn nemendafélags ykkar.

Ég hvet líka alla þá sem hafa áhuga á því að stofna nemendafélag við skólann að hafa samband.

Bestu kveðjur,

Sigurður Örn Hilmarsson

formaður Stúdentaráðs HÍ

shi@hi.is

siguhil@hi.is

GSM: 896-9444

og auðvitað sendi ég inn umsókn sem hagsmunafélag.

Þynnkuboltinn, hagsmunasamtök stúdenta sem vilja spila fótbolta þunnir!

mánudagur, september 25, 2006

Jólaglögg Þynnkuboltans III



Hreinn Bernharðsson hefur verið ráðinn skreytingastjóri undirbúningsnefndar varðandi Jólaglögg Þynnkuboltans.

Kveðja,
Helgi Hrafn Guðmundsson, formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans.

Jólaglögg Þynnkuboltans II



Axel Kaaber hefur verið ráðinn varaformaður undirbúningsnefndar varðandi Jólaglögg Þynnkuboltans.

Kveðja,
Helgi Hrafn Guðmundsson, formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans.

Jólaglögg Þynnkuboltans



Auglýst er eftir fólki í undirbúningsnefnd Jólaglöggs 2006. Áhugasamir hafi samband.

Kveðja,
Helgi Hrafn Guðmundsson, formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans.

sunnudagur, september 24, 2006

Nýtt tímabil hafið


Nýtt tímabil er hafið og aldrei í sögu Þynnkuboltans hefur hann verið jafnglæsilegur.
Við höfum skipt um heimavöll og erum komnir á nýjan 60 þúsund manna völl.
Nokkrar mannbreytingar hafa orðið en má þar helst nefna brottvíkingu Árna Ólafssonar sem hefur verið rekinn frá félaginu með mikilli skömm.

Lið voru svo skipuð

Svifryk Friðrik flaut um salinn og negldi þrennuna
Forlanwannabíið-Helgi helgaði sig markinu og setti einnig þrennu
Steini sleggja stóð vörðinn í vinstri bak
Túndru-Dúndru-Doddi negli nokkra nagla úr veggnum
Gvendur-Öruggar Hendur setti eitt eftir glæsilegt sólóprógramm. Hann mun gefa út disk á næstunni.
Frilli-Freyr barðist sem fress á adrenalíni og náði að hrista upp í sókn andstæðinga sinna.

spiluðu gegn

Synda-Sela sem mætti hress með sundhettuna en náði ekki að nota hana sem skyldi.
Sæ(kó)-Bassi náði ekki að troða honum inn eftir mikið klapp á boltanum.
Bragi Páll var sem áll á vellinum og smeygði sér fram hjá nokkrum varnarmönnum jafnvel eftir afhausun hans.
Læðu-Steimdór klór-aði sig inn í boltann og skoraði opunarmark Þynnkuboltans.
Hreinsi beibí slammaði einum inn í markið við mikinn fögnuð. Svo náði hann þeim áfanga að vera minnsti maðurinn í sögu Þynnkuboltans sem skallar boltann.
Krissi Spæs náði að krydda aðeins upp á leikinn og náði einu sinni að spæla andstæðinga sína.

Opnunarleikurinn fór rosalega vel fram. Mikil átök voru fyrstu mínúturnar en ekkert mark skorað en svo fór allt í gang.

Leikar fóru 7-2 fyrir fyrra liðinu. Samt segir markatalan ekki allt því leikurinn var mjög jafn. Svo væri gaman að fjalla aðeins um aðdraganda