miðvikudagur, desember 27, 2006

mánudagur, desember 18, 2006

Glöggur

Undirbúningur fyrir glöggina er kominn á fullt skrið.
Nú þarf einungis að ákveða allt.
Nefndin er víst alveg á fullu og eru allir að leggja sitt að mörkum.

Hér sést Helgi Hrafn á fundi með sölustjóra Vífilfells.
Umræðuefnið ku hafa verið um magnafslátt fyrir glöggina góðu.
Takið nú hrafninn til fyrirmyndar og látið hendur standa fram úr ermum (ath. ermarnar hans Helga).

fimmtudagur, desember 14, 2006

Jólaglögg Þynnkuboltans

Það hefur verið ákveðið samkvæmt meirihlutaatkvæði að jólaglöggið 2006 verði haldið heima hjá Steinari Erni Jónssyni að Eggertsgötu þann 26. desember næstkomandi.

Einsog áður hefur verið rætt hér á þessum síðum verður ýmisleg dagskrá á skemmtuninni. Því eru félagsmenn vinsamlegast hvattir til þess að skrifa ræður, undirbúa sögur eða brandara, tónlistaratriði eða hvaðeina sem lífgað getur upp á rauðþrútin brennivínsnefin í svartasta skammdeginu. Ég vil fá innsendar tillögur um atriði hér í kommentakerfið.

Undirritaður mun svo hafa aðalumsjón með innkaupum. En fyrst þarf að skipuleggja innkaupalistann. Rætt er um að kaupa áfengi í sameiningu, leigja karaoketæki, ekki mat en eitthvað þarf þó að maula. En til þess að koma þessu í skipulagt horf vil ég biðja ykkur um að tjá ykkar skoðanir hvað þessi mál varðar í kommentakerfinu. Einnig þurfum við að ákveða hvort við viljum leggja í púkk - kannski 1000 kall á mann.

Sem formaður undirbúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans vil ég árétta það og undirstrika að það er geysilegur vilji hjá undirbúningsnefndinni að þetta verði ein skemmtilegasta og fyndnasta samkoma seinni ára. Við ætlum að sleppa af okkur beislinu - enda er ærin ástæða til: Farfuglarnir í hópnum ætla að fljúga frá Skotlandi, Danmörku og fleiri stöðum til þess að heiðra okkur með nærveru sinni og hreiðra um sig í þessu gargandi galvaníseraða gaukshreiðri sem þessi vinahópur er. Auk þess hyggja aðrir félagsmenn á að gerast farfuglar strax á nýju ári.

En þegar ástæðan er ærin er starfinn einnig ærinn. Því árétti ég enn og aftur við ykkur og sendi ykkur hugvekju, ágætu þynnkbyltingar: Við verðum að leggja okkur alla fram. Rætt hefur verið að syngja hástöfum, klæðast múnderingum þeim sem við felum innst í skápnum og dreymum um að fá að máta. Það mun standa að allt sé leyfilegt ef menn geta lexískt stunið því uppúr sér að það sé FJÖR.
Og með þessum orðum ríf ég dyr umræðunnar af hjörunum og opna hana uppá gátt. Ég vil líflegar umræður hér í kommentakerfi. Leggjumst á eitt og sköpum farveg fyrir skemmtilegasta kvöld ársins.

Koma svo! Galvansseiðandi gaukarnir mínir! Beislum galvanskraftinn! Við skulum ekki vera galúneraðir gikkir! Við erum komfórusspirítískir kommandörar!

þriðjudagur, desember 05, 2006