sunnudagur, október 29, 2006

Nei takk, við kaupum ekki Alþýðublaðið

Það var kátt í höllinni í Réttarholtsskóla í dag. Fagrir leggir léku með knetti og skutu þeim fram og aftur í salnum sem tundurskeyti væru. Stelpan sem gætir salarins stóðst ekki freistinguna og njósnaði um ljósvíkingana.

Liðin skipuðu:

A.
Grettir gulldrengur
Friðrik gulldrengur
Ásgeir gulldrengur
Gvendur gulldrengur

B.
Helgi gulldrengur
Steini gulldrengur
Axel gulldrengur
Freyr gulldrengur
Hreinn gulldrengur

Doddi glópagulldrengur skrópaði hinsvegar og verður honum refsað. Meðfylgjandi er mynd af einum gulldrengnum, sýnishorn töfra og krafts sem í hópnum býr.

miðvikudagur, október 11, 2006

Jólaglögg Þynnkuboltans IV


Auglýst er eftir skemmtiatriðum á Jólaglöggi Þynnkuboltans 2006. Allir félagsmenn eru hvattir til þess að láta til sín taka á þessu mikilvæga sviði hópeflis í þágu liðsins. Sebastian Ryborg Storgaard hefur þegar samþykkt að syngja lögin hans Bubba Morthens auk þess sem Axel Kaaber mun stjórna hópsöngi hins sívinsæla spænska jólalags, "Gleðileg jól".

Kveðja,
Helgi Hrafn Guðmundsson, formaður undibúningsnefndar Jólaglöggs Þynnkuboltans.

miðvikudagur, október 04, 2006

Frjáls framlög

Til að styrkja Þynnkuboltann er hægt að senda pening á þennan reikning 0137-26-055285
kt: 0211842849
Þynnkuboltinn þakkar fyrir öll framlög.