sunnudagur, febrúar 12, 2006

11 febrúar

Í gær var mikið um gróf brot og slagsmál. Þar tókust á:

Veiki Frikki
Stóri Grettir
Sterki doddi og
Maradona Axel

á móti

Framherja Helga
Hraða Steina
Baráttu Árna og
Grófa Gvendi

Staðan var frekar jöfn framan af þangað til tíu mín voru eftir þá gafst síðar nefnda liðið upp og gaf leikinn. Baráttan var þvílík í fyrri hálfleik og í byrjun seinni þangað til að vörnin gaf sig hjá seinna liðinu og lak inn fáránlega mörgum mörkum. En svona er lífið, það lekur eftir ákveðnar margar mín.

En munið árshátíðina á föstudaginn og svo ef einhverjir eiga eftir að borga þá skulu þeir borga sem snöggvast.

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Árshátíð

Árshátíð Þynnkuboltans verður föstudaginn 17 febrúar. Heima hjá Steina stuð. Þar verður mögnuð stemning og svelgquiz haldið auk annara uppátækja svosem kosningu um bestu og efnilegustu leikmenninna. Daginn eftir verður svo ekkert gefið eftir í boltanum og mætum við allir útúrþunnir í fússara. Er annars einhver að fylgjast með bjórskuldunum? Hvernig skal bjórskuldin borguð og hver ætlar sér síðan að drekka þann bjór?

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Tíðin

Já, senn líður að árshátíðinni og við verðum að fara að skipuleggja okkur.

Ég legg til að það verði kosningar í teitinu.

Besti alhliðaleikmaður þ.e. leikmaður ársins.

Besti markvörður
besti varnarmaður
besti tengiliður
besti framherji

besti varamaður
mestu framfarir


lið ársins þ.e. það lið sem væri bara ósanngjarnt að búa til.

Svo þurfið að drullast til að borga það er nú einu sinni fyrsti.
Þeir sem eiga eftir að borga eru:
doddi
helgi
grettir
seli