miðvikudagur, nóvember 28, 2007


Axel norður af Langanesi

þriðjudagur, nóvember 27, 2007


Axel siglt til Fáskrúðsfjarðar

mánudagur, nóvember 26, 2007


Það verður kvikmyndakvöld næsta laugardag strax eftir æfingu.
Myndin The Brave Little Toaster verður sýnd. En okkar eini sanni Túndru-Doddi fer einmitt með aðalhlutverkið í myndinni. Hann leikur brauðrist sem gerir dauðaleit að eiganda sínum.

sunnudagur, nóvember 25, 2007


Til að styrkja fjárhag ÞB þá hefur verið ákveðið að skella bók í jólabókaflóðið.
Fyrsta bókin er um ofurhetjuna Steina.
Þegar Steini var á kynþroskaskeiðinu fékk hann kúamykju í augun. Þetta var engin venjuleg kúamykja heldur stökkbreytt Framsóknar-kúamykja. Augu Steina breyttust í geislavirk-Framsóknar-augu. Hann reikar nú um Ísland og skýtur Framsóknargeislum á saklausa vegfarendur. Hins vegar er Steinar hluthyggjumaður og á því í stöðugri innri baráttu.


Bókin er fyrsta í ÞB-seríunni.

föstudagur, janúar 12, 2007

miðvikudagur, desember 27, 2006

mánudagur, desember 18, 2006

Glöggur

Undirbúningur fyrir glöggina er kominn á fullt skrið.
Nú þarf einungis að ákveða allt.
Nefndin er víst alveg á fullu og eru allir að leggja sitt að mörkum.

Hér sést Helgi Hrafn á fundi með sölustjóra Vífilfells.
Umræðuefnið ku hafa verið um magnafslátt fyrir glöggina góðu.
Takið nú hrafninn til fyrirmyndar og látið hendur standa fram úr ermum (ath. ermarnar hans Helga).